Langtímasamband
Fyrir stuttu var ég með stelpu sem dumpaði mér, við höfðum verið saman í um það bil sex mánuði. Eftir því sem hún sagði var ég lélegur kærasti. Hún sagði að ég hugsaði of mikið um sjálfan mig og ekki nógu góður við hana, ég sagði þá bara “af hverju segiru svona við mig” og það eitt að því seinasta sem ég sagði við hana, fyrir utan orðið asnakjálki. Það sem mér þykir verst við þetta að það sem hún sagði var ekki satt, ég er ekkiþað sjálfselskur bara svoldið og ég var góður við hana. Seinustu tvær vikunar vorum við lítið að tala saman og þegar við töluðum saman vorum við ekki sammála um það mál sem við töluðum um. Fyrst kom okkur vel saman síðan… heyrðu þetta minnir mig á Bítlana(fólk segir stundum að ég geti blandað Bítlunum í allt sem ég tala um, það er ekki satt, þó ég geri það hérna), fyrst var allt voða gaman síðan fór allt í háfaloft. það sem mér þykir verst við þetta er að við vorum búin að vera svo lengi saman, maður kunni svo vel við hana fyrst. Reyndar vildi ég bara deila reynslu minni, einsog margir gera á huga, svosem er ég ekkert uber, dúber mega spældur, en er smá spældur. svosem er það soleiðis hjá mér, stelpa kemur, stelpa fer, stelpa kemur, stelpa fer.