Hvernig breytingar viltu sjá? Endilega láttu það í ljós og miðlaðu þeim upp á eigin spýtur, það gagnast ekkert að röfla um einhverjar breytingar sem enginn veit hverjar eru hér á korkinum.
Annars á þetta áhugamál við allt það sem tengist samböndum, sem sagt rómantík og vandamál í rómantíkinni, í raun allt nema kynlíf en til þess er einmitt /kynlíf áhugamálið. Ekki taka þessu orði of bókstaflega samt.
Ég get ekki séð að það þurfi einhverjar breyingar, nema kannski í gæðum á efni sem sent er inn. En tilgangi áhugamálsins er fullnægt.