Ég tek undir með öllum hinum. Ef þú heldur áfram að eltast við hana, þá getur þetta undið upp á sig og orðið 976.784.235.879.996.787,5 sinnum verra en það er núna. Haldirðu áfram aukast tilfinningarnar og hún fer að verða pirruð á þér… Síðan ferðu að vernda hana/verða yfirnáttúrulega öfundsjúkur út í alla aðra stráka sem að umgangast hana og það er alls ekki holt.
Gerðu bara allt sem í þínu valdi stendur til þess að tempra þetta. Skelltu þér á djammið, taktu þér smá pásu frá henni… Það er reyndar ekkert óeðlilegt við það að það verði alltaf svona pínu tilfinningar til staðar svo lengi sem þær haldast þannig.
Gangi þér vel! -Við höfum allir lent í þessu. :)