engel , þú að kalla einhvern fífl fyrir hegðun sína hér á huga, er meira en furðulegt, þar sem þú/þið eruð þeir sem eru að koma með leiðinda komment til fólks sem þið þekkið ekkert. Þar sem þú ert að haga þér svona þá geri ég hið sama í þinn garð, nema hvað ég kalla fólk ekki fífl, ég segi ekkert niðrandi um viðkomandi og segi ekkert sem gæti haft einhver áhrif á þig nema það að fá þig bannaðann hér. Þú segist vera í fullum rétti að segja þitt álit, satt , ekkert að því að segja sitt álit sem ég einmitt gerði þegar ég kurteisislega bað þann adminn ef hann læsi þetta að sjá hvort það væri grunnur til að banna þig, þetta er mitt álit og alveg eins og þitt á það fyllilega rétt á sér hér á huga.
EN, það sem þú gerir er lítið meira en asnalegt grín, sem getur MÖGULEGA haft neikvæð áhrif á fólk sem þú beinir þínum athugasemdum til, þ.e. þeirra sem þú svarar með dónaskap og barnaskap, þú segist hafa spurt systur þína ráða áður en þú svaraðir, ég leyfi mér að halda að annað hvort var hún í sama skapi og þú ert oftast, s.s. fúll á móti og með það eitt að leiðarljósi að vera leiðinlegur, eða að hún er 2 ára og gat ekki mögulega sagt þér neitt sem þú varst ekki búinn að ákveða að skrifa hvort eð er, s.s. eitthvað leiðinlegt og neitkvætt.
ég bið þig í einlægni, hættu að svara fólki svona, það finnst þetta engum fyndið nema þér og þú hlýtur að geta fundið þér vettvang þar sem þú ert betur metinn en hér, því ég skal segja þér að það eru fáir ef einhver sem kann að meta það sem kemur frá þér. hér á rómantík eru fullt af unglingum sem eru ráðvilltir sem vilja komast að því hvort einhver gæti aðstoðað , þá einhvern sem VILL hjálpa og hefur smá reynslu undir beltinu sem gæti komið málinu við, en ekki fá einhver leiðinda komment frá fólki sem gæti ekki verið meira sama um sinn ókunnuga náunga.
Lestu eitthvað af þessum þráðum sem hafa komið hér , þeim sem er gaman að lesa ef þú hefur gaman af þessu yfir höfuð, og sjáðu hvað það er mikið af fólki sem hér sem vill ókunnugum ekkert nema gott, og taktu það eftir þeim. Þú færð meira út úr því en að vera með einhvern aulalegan 5 aura húmor sem hittir aldrei í neitt mark nema þitt eigið, og öllum er sama um.
Gaur minn, ég var að tala um það að ég hefði talað við systur mína um vandamál hans ekki og hvernig hægt væri að leysa það.
Ég sendi Mola skilaboð en póstaði það ekki hérna. Þú hefur ekki hugmynd um hvað ég sagði honum og þar af leiðandi veist þú ekkert um systur mína eða mínar vinkonur.
Varðandi aulahúmor, þá eru ekki allir með sama húmor og þú, ég eða gaurinn í næsta húsi og þar sem þú hefur lesið (greinilega) eitthvað sem ég hef skrifað þá er það ekki í þeim tilgangi að vera fyndinn. Ég hef sagt það oftar en einu sinni að ég skrifa svona bull vegna þess að ég hef gaman af hitaumræðum, hversu heimskar sem þær eru og mér finnst fyndið að horfa á fólk æsa sig yfir litlum hlutum.
Hinsvegar þetta sem þú segir með að setja út á fólk með vandamál er alveg rétt. Illa gert og lítill tilgangur. Það er hægt að líta á málin þannig.
En hinsvegar þá geturðu litið á alla hluti frá mörgum sjónarhornum. Margir fá útrás á því að rífast við mig og vera stórir karlar (skjálfti). En allaveganna þá er það nú einu sinni þannig að ef ein manneskja rakkar einhvern niður þá verða allir í kring ólmir í að hjálpa grey manneskjunni, mun meira en áður.
Segum sem svo að manneskjan er feit, ef ég sæi hana of færi að rakka hana niður fyrir útlitið þá væri það illa gert. Þjónaði engum tilgangi. En ef manneskja talar um að hún sé feit og ég hef aldrei séð hana til að dæma það sjálfur, en fer hinsvegar að setja út á hana (án þess að vita hvernig hún lítur út) þá er það á vissan máta hvetjandi fyrir hana til þess að breyta því sem hún getur.
Það er alltaf hægt að hlusta á góð ráð. En góð ráð gleymast fljótt, það sem ég geri gerir það ekki.
Hvort það er illa gert að setja útá útlit manneskju sem maður hefur aldrei séð er eitthvað sem hver verður að gera upp við sjálfan sig, og að mínu áliti er ég að hvetja stórt fólk til að breyta sér, það vill það, annars væri það ekki að tala um þetta.
Það þarf bara einhvern til að sparka í rassgatið á þeim.
0
Og hvenær skrifaði ég eitthvað leiðinda comment í garð Mola?
Haltu þér rólegum og ekki taka Huga svona hrikalega alvarlega.
0
Strákar/stelpur!! Verum bara öll vinir….
0