Já, veistu, ég held að þú ættir aðeins að létta á íhaldseminni (þú ert reyndar í hárréttum skóla fyrir íhaldssemi :P ), en ekki alveg sleppa þér samt.
Ég tel, af þessu littla sem ég hef lesið frá þér, að þér veiti ekki af smá reynslu í ástarmálunum.
Segjum að þú sparir þig þangað til að þú hittir á þá réttu og þá kemur skyndilega í ljós að þú ert gersamlega óreyndur bæði í bólinu og í sambandsmálum og allt fer um þúfur.
Ég tel líka að það sé ekkert bara hægt að finna þá réttu bara með því að horfa á hana (er reyndar nokkuð viss um að þær eru margar þessar réttu). Þótt að það sé alveg yfirnáttúrulega rómantískt að verða ástfangin af manneskju sem maður annars svona rétt talar við og að spara sig fyrir hana og bara hana, þá er það líka yfirnáttúrulega hættulegt tilfinningalega séð. Hvað ef sú rétta er tekin eða vill þig ekki? Trúðu mér, það er viiiiiiirkilega sárt!! Verra en spark í punginn og óþægilegra en þegar heita vatnið fer skyndilega af útileikfimisturtunum í MR.
Ég segi að þú ættir að prófa þig örlítið áfram, ekki endilega fara að playboyjast í öllum stelpunum eins og þú nefndir hér að ofan, heldur frekar draga þig að stelpum sem þú ert hrifinn af, í stað þess að skimast stanslaust um eftir stelpu sem þú ert ástfangin af. Vertu bara viss um að ykkur komi vel saman og þér lítist vel á hana og móðir náttúra sér um afganginn. ;)
Og, persónulega, finnst mér ekkert að einnar nætur gamani svo lengi sem maður fullvissar sig um að maður sé ekki að brjóta hjarta stelpunnar, notar smokkinn og stundar það ekki of oft, því þá kemur druslustimpill (sem er reyndar tattú). Þ.e.a.s. að stelpan sé líka bara að leita sér að einnar nætur gamani eða bólfélaga í mesta lagi.
Opnaðu augun pínulítið, það er feykinóg af föngulegum MR-stelpum (og líka ekki-mr-stelpum), en láttu kærustuna mína í friði, því að hún er vitaskuld frátekin! :)