Vesen og leiðindi? Væri ekki óskandi að þú gætir sloppið úr þessu með gaurinn og bestu vinkonu þína á sama bandi. Kannski gætuð þið öll farið saman í bíó í besta bróðerni og kannski reynt að redda vinkonunni öðrum strák. GEAT REAL! :)
Það lítur út fyrir að þú sért að segja að vinkona þín eigi gaurinn ekki skilið, þess vegna stökkst þú inn og bjargaðir málunum. Skiptir engu máli þótt þú varst full, ekki afsaka þig á því. Þetta er auðvitað hræðilegt að stinga vinkonu þína svona í bakið, ég vona að þú sjáir eftir þessu. Af minni reynslu þá endast sambönd sem byggjast á svikum oftast STUTT. En þú virðist ákveðinn að ná í þennan gaur og ef til vill “byrja með” honum?
Fyrsta sem þú VERÐUR að gera er að tala við (bestu) vinkonu þína og segja henni frá hvað gerðist. Hún á það skilið, þú særir hana meira ef hún fréttir af þessu frá einhverjum öðrum, og þá geturðu kysst vinskapinn bless. Hún líklega dumpar gaurnum og verður MJÖG sár og reið út í þig.
Þá verður þú að velja…
Vinkonu þína (sennilega til margra ára) – eða – þetta stóra skot þitt sem að öllum líkindum á ekki eftir að endast lengi.
“Once a cheater, always a cheater”
Ef þú velur gaurinn, býstu við því að hann verði þér trúr? Hann hélt framhjá vinkonu þinn, af hverju ekki þér? Myndir þú verða honum trúr? Hvað gerir þú þegar einhver sætari, skemmtilegri, etc.. gaur birtist. Hefurðu hugsað möguleikann að hann var bara að leika sér að þér?
Aðalatriðið er að það er annaðhvort hún eða hann, ef þú velur hann áttu hana einfaldlega ekki skilið sem vinkonu. Ef þú velur hana þá gæti hún metið hreinskilni þína og fyrirgefið þér með tímanum. Strákar eiga eftir að koma og fara.. ég veit að það er ótrúlega erfitt að trúa því en þessi gaur er ekki sá EINI RÉTTI.