Þetta er ekki asnalegt hjá þér og láttu engan segja þér annað!
Þú þarft ekki áfengi það slævir þig bara og skapar fleiri vandamál en lausnir(hjálp).
Djammið er einn vonlausasti staður til að ná í kvenfólk og auk þess hittirðu það ekki í sínu rétta umhverfi sem það lifir í dags daglega heldur í einhverju gerviumhverfi og hávaða, reykjakófi og áfengisvímu. Það er mitt álit.
Láttu vaða og þetta þurfa ekki að vera neitt ofurgáfulegar umræður, bara ef þú veist hvað þú ert að segja, heldur samræðunni og finnur að hún hefur skoðanir og áhuga á því sem þú ert að segja, annars skipta um umræðuefni, fer líka eftir stað og stund. Það er mitt álit.
Hvort er verra að fá neikvætt svar eða vita ekki hvort þú fáir jákvætt eða neikvætt svar? Hugsaðu um það!
Það er aldrei skemmtilegt að fá neitun en ekki taka því persónulega og láta þer líða illa útaf því. Þó að þessi stelpa hafi ekki haft áhuga á þér þá er örugglega einhver stelpa þarna úti sem hefur áhuga á þér. Þú verður bara að halda áfram að tala við aðrar stelpur þar til þú hittir hana. Þannig er bara lífið.
“Kannski að viðkomandi stelpa sé á föstu eða eitthvað álíka skemmtilegt.” og hvernig átt þú að vita það nema hún sé trúlofuð eða gift? Það er ekki eins og það sjáist á fólki að það sé á föstu eða í sambandi.
Vonandi hjálpar þetta þér eitthvað og eitthvað gáfulegt er í þessu. Þetta eru aðeins pælingar því þú þarft að finna hluti sem virka fyrir þig en ekki láta einhver segja þér hvað þú átt að gera.
Bellator.<br><br><b>Tilvitnun:</b><br><hr><i>“Maður lærir af reynslunni, allt annað eru bara upplýsingar.”</i><br><hr>
- <b>Albert Einstein.</