Vá ég veit ekki betur en mig vantar bara að tjá mig í smá sögu hérna núna.

Jæja hvar á að byrja. Tja ok þetta byrjaði fyrir langa löngu þegar ég var í grunnskóla og fór að flækjast um í aðraskóla þegar ég sá þessa ungu stúlku sem ég skal nefna X, jæja ég sá X og ákvað að segja heni að mér þætti hún mjög efnilega í bráðmyndarlega unga konu þegar hún yrði lengri ég í 10 bekk og hún í 7 bekk, (á þeim tíma fanst mér það vera of ungt og of gamalt ef þið skiljið hvað ég á við) þannig ég sagði við hana að ef ég skyldi hitta hana nokkrum árum seinna þá myndi ég ábyggilega tala við hana og sór við sjálfan mig að hún skyldi vera mína.


Nokkrum árum seinna er ég að halda 20 ára afmælið mitt þegar hún birtist á dyragættini þar sem ég er að halda partý og ég fék alla þessar bíómynda fíling í magan og hné. (jájá ég er strákur ;Þ) þarna var minn tími komin til að standa við það sem ég hafði lofað við sjálfan mig á yngri árum. Nema hvað að það var annar vinur minn sem vissi ekkert af mínum plönum komin á fullt með að reyna við hana, en ekki komin það langt að það var farið í eitthvað sem mátti ekki stopa en ég eins og besti vinur eða félagi sæmir gerði ekkert í því en vinkona henar sá að mig langaði að trufla og taka hann á tal og kynnast.. og viti menn hún óð inn í sjónarvarpsherbergi það sem við sáttum og kippti okkur báðum út og inn í eldhús… hehe og þar spurði hún hvort að okkur væri ekki sama ef við myndum kyssast og ég þessi góði strákur gat nú ekki annað en roðnað en svaraði að ekkert þætti mér betra, þetta endaði með því að við kysstumst og húna fór ekki heim fyrr en ég skullaði henni næsta dag. notabene ekkert gerðist á kynferðislegumnótum nema þá ef þið flokkið kósy kossa knús spjall í þann hóp sem ég geri hinsvegar ekki.

Jæja aftur í söguna.

Þetta var upphaf af okkar sambandi sem varði í 3 ár og gott betur en það. ef ég segi satt. þá elskaði ég hana út af lífinu. en eitt var þó að. Ég.!

Já mér fannst ég vera hægja á hennar plönum. hana langaði að fara út og læra sem og annað og var komin með plön og ég hélt mér untan við þau þó ég hefði getað farið í þau en gerði ekki.

ég var abbó við minnsta tilefni. vantraustur á hana og virti hana ekki eins og hún á skilið. eða það sem mér finnst í dag að hún eigi skilið og ef mér gæfist tækifæri að breyta þessu myndi ég svo sannalega gera með opnum örmum og fagna hverju tækifæri fyrir sig.

Jæja.. ég hætti með henni fyrir “hana” en að mestu útaf mér t.d. þurfti að þroskast og annað til að geta verið sá maður sem mér finnst hún eiga skilið… hún fór sína leið og ég mína.. .á endanum afsjálfsögðu var hún með strák og ég annari stelpu sem er nátturuelga bara vegur lífsins. En strákurinn sem hún valdi var bjáni í mínum augum og er ennþá í dag. en núna er ég sáttur við það því þetta á hreinlega ekki að koma mér við ;Þ… ok ég skil það allt. núna. ekki þá en núna. því miður.

ég fer að djamma og djúsa kynnist nýju fólki og hef það bara gott á sinn hátt. kynnist stelpu sem vakti áhuga minn þegar ég sá að hún var þessi X týpa en frábrugðin á sinn hátt. sem minnti mig ekkert á “name X” hvokri útlit eða annað…. get varla útskýrt þetta en hún vakti sömu hrifningu og það sem X gerði í firsta skiptið. og það endaði í sambandi rosa gaman mikið djamm og mikið fjör…. kynlífið var mjög gott og endaði með að hún varð ólétt, það kom á að ég sagði við hana að hún ætti að spá í hvað hún vildi og láta mig vita svo skyldi ég segja mína ákvörðun og myndum bara ráða fram úr því… þetta gerði ég bara til þess að hafa ekki áhrif á henar dómgreind í hvað hún vildi. og ákvað hún að eiga og ég tek mína ábyrgð fullum höndum. og eignaðist dóttur. sem ég er mjög ánægður með í dag. (ég á mína eigin stúlku. mitt barn, æði) en sambandið okkar endaði með að við hættum saman í góðu því við vorum orðinir mjög góðir vinir frekar en eitthvað annað og er allt gott og blessað með það…

Já ok ég er ábyggilega kominn með þig á það stig sem þú spáir hvar er vandarmálið eða svona að hálfu. þetta er huge mikið og svfr.. jæja þá er vandarmálið komið á borðið í gegnum þessa sögu og áframhaldið á eftir því…

Mig fer að dreyma. ekkert kinky eða þannig. bara ósköp venjulega en í þessum draumum kemur X alltaf sem veldur að ég fer að hugsa um hana eftir 4 mánaða sambandslit frá barnsmóður minni.. ég rekst á hana niður í bæ. eða þannig. keyrum framhjá hvoru öðru. þetta fék mig til að hugsa meira um hana og svofr…

Eins og allir vita þá á hver og einn sínar minningar kistu. ég á mína og var að taka til þegar ég rakst á hana og fór að skoða og það fék mig til að skilja að ég hreinlega elska X enþá og það ekki smá mikið… ég enda með að hringja í hana ekki til að fá neitt eða gera eitthvað .. heldur til þess eins að segja “fyrigefðu” vegna þess að mér finnst hún ekki hafa átt skilið hvernig ég lét.. en ekkert rosaallvarlega. en ég hefði betur mátt sleppa hinu og þessu. note ekki mjög allvarlegt en nóg til að mig fanst hún eiga skilið Fyrirgefði frá mér. Sína smá persónu. Spyr svo hvernig hún hafi það, og hún segiri “gott” og ég sagði “frábært. mig langaði bara hringja og segja fyrirgefðu. við hittum kanski í fjörru við tækifæri” (fyrir fáfróða þá þýðir það að hittast óvænt)

Eftir það hef ég hugsað mikið hvað skal gera. ef ég hitti hana.. haha crazt en jæja. Þetta er vandarmál. mér finnst hún vera sálufélagi minn síðan ég sá hana.

Hvað getur maður svosem gert?
Gleymt?
bíða og sjá?
eða rjúka af stað?

Ég hreinlega er ekki nógu vel að mér settur til að dæma og gefa ráð til sjálfsmíns en er þó góður í að hjálpa öðrum.. haha hver er það ekki….

Allavega ekkert flame takk ekkert rugl. +

Ég þakka þeim sem les þetta fyrir tíman og fyrir að reyna skilja hvaðan ég kem.


Takk fyrir mig<br><br>——————————-
chan: #counter-strike.is #eve.is #es.is
Eve corp : Eternal Silence
cs / eve nick: Armani / Byarne
e-mail: <a href=“mailto:armani@simnet.is”>armani@simnet.is</a