Jááá.. það eru nú allmargir póstar um þetta hér :) m.a gerði ég svona póst ;) hehe.. en já, ég gerði bara það sem allir hér eru að segja.
Þ.a.s: Ég bara fór til hennar í skólanum þegar hún var eitthvað að labba ein og sagði bara hæ/hæj/sæl eða eitthvað(man ekki), og hún sagði bara Hæ á móti, og ég spurði ,,Hvað segjiru“ .. og hún svaraði, og sagði eitthvað sem ég gat spurt hana meira út í.. og svo bara gekk þetta áfram og áfram.. nú erum við vinir og svona .. svo er líka gott að þekkja vinkonur hennar, hehe þá geturu fengið að vita hvort hún sé eitthvað hrifin af þér eða eitthvað ;) getur gagnast :).
En ef ég á að stytta þetta eitthvað, farðu bara til hennar og reyndu að gera samtal, ef það gengur ekki, reyndu aftur. Þetta gekk ekki heldur hjá mér í fyrstu..
En svo er annað, ég verð eiginlega bara að segja þetta, þetta er mjög óréttlátt en samt er þetta svoleiðis, það er svoleiðis með vexti að stelpur eru hættar að spá í persónuleika í strákum, bara útlitið, já hann er flottur, best að tala við hann/byrja með honum eða hvað sem er.. þannig þú verður eiginlega að vera eitthvað ,,flottur” til að hún sýni einhvern áhuga á þér..
Flestar stelpur leita auðvitað eftir andliti, svo líka flottan maga, margar vilja bara einhverjar horrenglur, en flestar held ég vilja svona massaða, ekkert eitthvað GEÐVEIKT massaðann, bara svo það sést að þú sért ekki feitur sko.
Vonandi gengur þér vel ;;)