Svona póstur hefur áður verið gerður en ég bý auðvitað til annann! ;)
Ég var að spá í hvort að ein stelpa sé hrifin af mér eða ekki? Hún er ótrúlega sæt og svona en málið er að sko í tíma í skólanum er hún stundum að horfa á mig og þegar ég er t.d að líta fyrir aftan mig á klukkuna(ætla mér ekkert að líta á hana) lítur hún strax aftur niður og byrjar að reikna eða eitthvað. En hún venjulega byrjar ekki samræður við mig heldur er það ég og þá er hún alveg til í að tala við mig og svona.
Langar bara að vita hvort hún sé hrifin af mér svo ég geti kanski reynt að láta þetta fara lengra eða eitthvað. Annars ef hún er það ekki og ég reyni það verður þetta martröð.