hæhæ ég er 16 ára stelpa og á við pinu vandamál að stríða. Ég er rosalega skotin í strák sem er vinur kærasta vinkonu minnar.
Ég sagði vinkonu minni það og hun sagði kærastanum sinum það og hann sagði stráknum (svaka keðja). En svo manaði ég mig upp í það að senda honum sms (ég er ekki feimin nema þegar eg er virkilega hot fyrir stráknum, þá fer ég öll í klessu) og það var allt í gúddý og voru bara eikkað að hözzla í gegnum sms (lame, ég veit) svo fórum við svona að tala minna og minna saman.. (hann er þessi feimna típa)
vinkona min kærasta vinar stráksin spjallaði við hann og hann sagði við hana að hann væri allveg að fíla mig og allt svo leiðis. Og ætlaði að hözzla mig.
Svo hitti ég hann um daginn þegar ég var með vinum minum í pool og hann kom inn með vinum sinum og þetter svona allt sameiginlegur vinahópur þannig allir töluðu saman, en ég og hann töluðum ekkert saman það var bara hæ skiluru. Og þetta var geðveik vandræðalegt. Akkuru? Við töluðum allveig saman þegar við vorum bara vinir en núna var þetta svo asnalegt…
Ég veit þetta er frekar langdreigið en endilega hjálpiði mér… Og þið sem eruð alltaf með eikker leiðindi endilega haldið því fyrir ykkur sjálf :)