Góð tilfinning
Gerist það ekki oft fyrir ykkur að þið eruð einhverstaðar úti eða í skólanum eða eitthvað og þið eruð svona að horfa í kringum ykkur og sjáið stelpu sem þið eruð kannski hrifin af eða bara einhverja sæta :) og þið horfist í augu og þú bara finnur einhverja svona góða tilfinningu. Ég er frekar feiminn þannig þegar þetta gerist brosi ég útaf eyrum og lít undan eftir smá stund og roðna svoltið :)