Kræktu í þann sem þekkir þig ekki og er í allt öðrum skóla. Farðu á skólaböll annarra skóla;) en af hverju segistu ekki vera vinsæl? Ertu þá MJÖG óvinsæl? Eru hinir ekki góðir við þig eða láta þeir sig engu skipta um þig? Ertu feimin við þau? Ég er feimin sjálf sko og fannst ekkert mikilvægt að verða vinsæl…t.d. með því að falla í hópinn en þá þurfti maður að reykja og drekka og hvað ertu gömul? Ég átti 2 vinkonur út öll sk ólaárin og einn samkynhneigðan vin. Áttu ekki einhverjar vinkonur líka til að gefa smá ráð? Þetta fer líka eftir því hvað þú ert gömul, því ef þú ert táningur í grunnskóla, þá á þetta allt eftir að koma hjá þér í framhaldsskóla og/eða háskóla ;)