Heyrðu hokeypokey, hvernig stendur á því að þú ert svona rosalega stressuð yfir kærastanum þínum (sem ef ég skil skrif þín rétt er stórkostlegur). Það er staðreynd að fólk tjáir ást sína á mjög mismunandi hátt. Þú virðist til dæmis vilja tjá ást þína með orðum og miklum faðmlögum, hann vill kannski nota aðrar aðferðir til þess að tjá ást sína.
En stóra spurningin er: Er hann ekki enn þá að gera sömu hlutina og þú féllst fyrir í upphafi? (Mér heyrist þú alla vega vera enn þá mjög hrifin af honum).
En að lokum vil bara segja eitt, taktu lífinu með ró, og sjáðu til með hvað gerist. Til hvers að hafa óþarfar áhyggjur af framtíðinni, reyndu heldur að njóta núsins.
Kveðja habe.