Ég á við líka þetta ótrúlega skemmtilega vandamál að stríða. Ég get ekki sagt við stelpur að mér finnist þær sætar, frábærar eða neitt svoleiðis, en bara ef ég er hrifinn af þeim. Semsagt ef að ég væri hrifinn af stelpu og hún væri alveg ótrúlega frábær stelpa og sæt, þá gæti ég ekki sagt við hana “veistu, þú ert með ótrúleg augu” eða “þú ert ótrúlega sæt stelpa” eða “hæ, mætti ég kannski bjóða þér í bíó?”. Ég gersamlega frýs alltaf, í hvert einasta skipti. Ég hef reynt margt, td. að undirbúa mig vel, kannski með plani eða æfa það sem ég myndi segja. Ég hef líka reynt að fara óundirbúinn til verks, en ekkert skeður.

Getur einhver þarna úti í þessum cyperheimi hjálpað mér?

PS. Gerið það fyrir mig, ekki segja e-mail eða eitthvað svoleiðis. Vil geta gert hlutina í beinni útsendingu, ef þið skiljið hvað ég á við, face 2 face.