jæja, núna gerði maður vitleysu dauðans, þannig er málið að ég er (var?) með konu sem að mér þykir svo óskaplega vænt um og við fórum saman á djammið síðastlíðinn föstud. og ég kyssti aðra stelpu!!! þvílíkt fífl. Jæja, ég notaði þann litla manndóm sem eftir var í mér að segja henni þetta nú alveg sjálfur og henni finnst hún náttúrulega hræðilega svikinn (vaaá hvað ég skil hana) en allavega núna langar mig að vera mjög góður við hana, hvað get ég gert (veit að það bætir ekkert fyrir þetta) sem að gæti hjálpað henni að fyrirgefa mér? bara eitthvað svona sætt, rósir, að gera eitthvað, leyfa henni bara að jafna sig…???
Öll svör vel þegin!!