Bæði ég og minn kall eigum þónokkur sambönd að baki, og við höldum ekki reglulegu sambandi við neina fyrrverandi.
Einn af mínum fyrrverandi er stundum í sambandi, en samband okkar var nú aldrei neitt mikið, vorum “saman” í nokkrar vikur, og sáum bara að við ættum ekki saman, og höfum verið ágætis vinir síðan, þó svo hann reynir ýmislegt ef ég hef hitt hann ein, sem ég hætti að gera eftir að ég byrjaði með mínum núna.
Í byrjun sambandsins sem ég er í núna var mikil afbrýðissemi í gangi hjá okkur báðum, en allt hefur lagast síðan þá, við vitum að það er enginn ástæða til að vera með afbrýðissemi, en úff hvað þetta var erfitt fyrst! :)<br><br>–Heimasíða<a href="
http://www.strawberrytatoo.com“>strawberrytatoo.com</a>–Kasmir–<a href=”
http://kasmir.hugi.is/betababe“>Kasmir</a>–Blogg–<a href=”
http://strawberrytatoo.blogspot.com">Blogg!</a