Hver af ykkur stelpunum eru með strák eða hafa verið með strák í Krabbamerkinu? Ég er í sambandi með Krabba og var einmitt að lesa um Krabbann í kvöld (ekki í fyrsta skiptið, þar sem ég hef mjög mikinn áhuga á persónugerðum) og það er sagt að þeir séu með mjög breytilegt skap, sem getur breyst án fyrirvara…allt í einu getur hann verið pirraður þegar maður á síst von og er nýbúin að hafa það gaman með honum…en ég veit að skapið breytist aftur hratt og verður gott á ný. Auðvitað breyta allir um skap og eru ekki alltaf í sama skapi, en það eru oft ástæður fyrir skapinu…það breytist með meiri hraða og oftar, hjá Krabbanum. Þeir eru óútreiknanlegir í skapi og þú veist aldrei hvar þú hefur hann.
Ég lét þetta hafa áhrif á mig þegar hann varð pirraður áður, en núna sýni ég varkárni og reyni að láta hann ekki sjá að það láti á mig fá, því þrátt fyrir skapbreytinguna er hann alltaf brothættur af viðkvæmni. Ég passa mig alltaf á því sem ég segi því hann er auðsæranlegur, og myndi vera lengi að jafna sig.
Hvað segið þið nú stúlkur mínar? Ætlið þið að gefast upp ef svona kemur uppá? Mér þykir svo VÆNT um hann að ég gæti ekki hugsað mér að vera án hans, því hann er sá rómantískasti sem ég veit um :) Endilega segið mér ykkar skoðun takk.