Ég var að velta fyrir mér!
Þetta er ekki meint sem rub it in fyrir þá sem eru single (smáskífur). En hefur einhver komist á stað í lífinu og hugsað HEY ég er gegt hamingjusöm. Setið í bíl og allt í einu byrjað að hlægja. Mér hefur hlotnast það að verða alveg dundur hamingjusöm (og að sitja inni í bíl hlægjandi). Fyrir ca 10 mánuðum hitti ég kærastann minn. Hann er ljósið í lífi mínu. Fyrir svona ári þá hataði ég stráka, ég var hrifin af gaur sem var síðan ekkert nema asni. Svo bara einhvern veiginn fór maður að hugsa um eitthvað annað. Það er svo fyndið hvað hlutirnir geta breyst liggur við á einni nóttu. Ég og “me boyfriend” byrjuðum sem vinir og erum í dag bestu vinir og meira segja meira. Hér með vil ég óska öllum hér á Huga á að hljóta sömu gæfu og ég. Þetta er ekki meint sem eitthvað “búhú bæmið thing” ég vildi bara láta vita að einhverstaðar þarna úti er einhver fyrir þig…..
ef þið sjáið manneskju eina í bíl skelli hlægjandi þá er það ég ;)