Þú segir að þér finnist þú vera aumingi fyrir það að fá feimniskast í hvert sinn sem þú ætlar að tala við hana. Ok, í fyrsta lagi skaltu hætta þessari niðurrifslu á sjálfum þér. Ef þú lítur á þig sem aumingja þá líta aðrir á þig sem aumingja líka. þú verður að herða upp hugann, finna út allt það jákvæða í fari þínu og reyna að draga það fram í dagsljósið.
Það er hrikalegt að vera feiminn, ég veit það, en því fyrr sem þú tekst á við feimnina, því fyrr hverfur hún.
Talaðu við hana, byrjaðu bara á einhverju einföldu og láttu það síðan leiða af sér. Ekki spá of mikið í það að þú sért feiminn, því þá er ekkert víst að hún taki neitt eftir því. Aðal málið er að þú látir verða af þessu, annars áttu bara eftir að sjá eftir því.
Gangi þér vel. kveðja mks