Áfengi er engin afsökun...
Ég er búinn að pirra mig yfir hlutum sem skeðu í gærkveldi og held að mér eigi eftir að líða eitthvað betur ef ég tala um þá en þori því ekki við neina manneskju svo ég ætla að leyfa ykkur að njóta vandræðanna með mér. Ég var búinn að kynnast dís minna drauma, yndislegustu stelpu sem ég hef nokkurntíman kynnst og búinn að vera í föstu sambandi við hana í aðeins meira en 3 mánuði. Sambandið gekk mjög vel fyrst en svo fór þetta alltaf að verða meiri og meiri kvöl fyrir okkur bæði af því að við höfðum svo lítinn tíma til að eyða saman. En hvað með það við reyndum og reyndum að laga þetta en voða lítið gekk svo að við slitum þessu endanlega þótt að við bæði vildum halda þessu áfram. Það er sirkað hálfur mánuður síðan og við erum alltaf að tala saman og við eyðum næstum meiri tíma saman núna heldur en áður og viljum bæði reyna þetta áfram en þorum því bara ekki. Svo í gærköldi þá fékk ég 2 góðar vinkonur kærustunnar minnar fyrrverandi heim til mín að djamma. Við drukkum heldur mikið og vorum orðin mjög full um morguninn svo við ákváðum að slíta þessu og fara að sofa en þá var búið að gera brjálað veður svo að þær fengi báðar að gista hjá mér. Ég bjó um þær í gestaherberginu en ég var búinn að taka eftir því að önnur stelpan var að sýna mér mikinn áhuga. Svo þegar hin var sofnuð þá læddist hún yfir til mín og upp í rúm. Ég vildi als ekki gera neitt og reyndi að fara að sofa næsta hálftímann en hún hélt áfram að strjúka mér og reyna að kyssa mig. Og eins og hvað ég var drukkinn þá byrjaði ég að kyssa hana til baka og áður en ég vissi af þá voru við byrjuð að afklæða hvort annað. Svo þegar allt var að fara að ná hámarki þá sagði ég að ég gæti þetta ekki, ég ætti eftir að hafa svo mikið samviskubit og bað hana að fara aftur yfir að sofa. Ég vaknaði ekki fyrr en um 2 leitið og þá hringdi mín fyrrverandi í mig, ég var voða skrítinn og vildi segja henni frá þessu svo að hún myndi ekki frétta þetta annarstaðar en þorði því ekki… Þessi stelpa sem var með mér um kvöldið skipti mig engu máli og nú veit ég varla hvað ég á að gera. Ég þori ekki einu sinni að byðja hana að þegja yfir þessu og er alveg viss um að mín fyrrverandi á eftir að komast að þessu og aldrei neitt verður meira úr sambandi mínu við hana hvað þá vináttu. Ég var reyndar mjög fullur en það er engin afsökun. Vonandi lendið þið ekki í þessu sama og ég er nánast viss um að einhver sem les þetta hefur upplifað eitthvað svipað. Það var ekki meira sem mér langaði til að skrifa um þetta svo að bara skemmtið ykkur við að lesa og hugsið málið vel áður en nokkuð svona hendir ykkur! ! !