Ég er í smá vanda! Ég er 19 ára strákur og er búin að vera í sambandi með stelpu sem er einu ári yngri en ég í 2 ár. Við erum búin að vera mjög hamingjusöm en mér fynst samt eins og við séum að færast rosalega mikið í sundur. Ég er þessu opna persóna sem á marga vini og vill helst tala við alla um alt, en hún er mjög lokuð og á erfitt með samskipti. T.d. um dagin gat hún ekki farið til mömmu minnar til að fá lánaðan púða af því henni var illt í bakinu og vildi liggja á mjúkum púða! Þetta fer ótrúlega í taugarnar á mér, að hún geti ekki talað við fjölskylduna mína án þess að vera feimin! Ég held að þetta sé ekkert að ganga en hvað á ég að gera?