Ég held að það sé enginn algildur tími á þessu. Ég veit nákvæmlega hvað þú átt við í sambandi við að hoppa í fangið á næsta manni, en passaðu þig á því. Þú ert líkleg til að meiða aðilann sem þú hoppar í fangið á. Gerir ekki mikið fyrir samviskuna, trúðu mér. Ég myndi gefa þessu a.m.k. 6 mánuði, en það fer eftir því hvað þú varst búin að vera lengi í þessu sambandi. Hjónaskilnaði uppá yfir 5 ár myndi ég gefa minnst 18 mánuði til 2 ár. En ég veit það fullvel að það er voðalega auðvellt að segja svona. Þú verður bara að vera heiðarleg við sjálfa þig, varðandi hvernig þér líður, hvað þú ert að fara útí og hvers vegna.
Ég get kanski ekki ráðlagt þér mikið, þar sem ég klúðraði þessu algjörlega og lengdi í rauninni sorgartímabilið mikið, með þessum “rebound” eða “transition” samböndum. En ég er svosem reynslunni ríkari eftirá og búin að ná jafnvægi. Tók líka tímann, dammit! LOL!
Farðu vel með þig, Lynx.