okey - ég er ekki stelpa en ég ætla samt að svara þér. Ég segi þetta alls ekki til þess að gera lítið úr stelpum eða neitt slíkt en stelpur eru ekkert flóknari en við strákarnir en það eru nokkur prinsip sem við verðum að skoða þegar við erum að “hösla” stelpur. Í flestum tilvikum þá eru stelpur meiri hópverur en við og það sem merkilegra er þær eru mun harðari við hver aðra og jafnvel stundum illkvitnar jafnvel þó um bestu vinkonur sé að ræða. Því er mjög mikilvægt að vinkonum hennar lítist vel á þig sem og henni s.s. þú þarft ekki bara að ganga í augun á henni heldur líka vinkonum hennar! Eitt sem er algjört skilyrði: ekki afklæða hana með augunum (a.m.k. ekki þegar hún eða vinkonur hennar sjá til), ég meina t.d. ekki horfa á líkama hennar eða föt hennar þegar þú ert að tala við hana eða ert nálægt henni - jafnvel þó þú sért ekkert að spá í því hvernig líkami hennar er eða hvernig fötum hún er í. Betra er s.s. að horfa í augu hennar eða eitthvert út í loftið (ég mæli samt með því að horfa meiri hlutan af tímanum framan í hana). Einhverja hluta vegna þá halda stelpur að við séum alltaf að afklæða þær með augunum. á hinn boginn þá er það stór plús ef þú getur sýnt henni að takir eftir því hvernig hún klæðir sig því flestar stelpur taka talsverðan tíma í það að velta því fyrir sér í hverju þær eiga að vera (varaðu þig þó á þessum fáu undartekningum). Af öllum þeim stelpum sem ég hef verið með og þeim vinkonum sem ég á þá hafa bara tvær stelpur vitað nákvæmlega hvers konar strák þær eru að leita að, hinar hafa flest allar svarað mér því að þær séu að leita að skemmtilegum strák - þ.e. lýsingin er mjög almenn og gæti átt næstum því við hvaða strák sem er, svo mundu að brosa, slá á létta strengi og passaðu þig á því að gera ekki lítið úr henni. Þú getur að sjálfsögðu slegið þér á brjóst og talað um afrek þín en það virkar samt á mjög lítinn hluta stelpna en það að hafa eitthvað sem kallast staða eins og t.d. formaður nemendafélags, íþróttakappi eða því um líkt virðist virka afskaplega vel á stelpur EN alls ekki nauðsynlegt. Sjálfstraust (ekki mont) er líklegast eiginleikinn sem þær hrífast mest af. Einnig í lokinn, ef stelpa finnst hún eiga eitthvað sameiginlegt með þér, vaknar áhugi og annað ef þú ert mjög hrifinn af stelpu passaðu þig þá á því að reyna ekki of mikið - það ýtir henni bara í burtu - en að sýna að þú hafir kannski áhuga sakar ekki.