hér er meira til að melta…
ég hef nokkru sinnum talað við hann í síma áður en ég flutti frá íslandi til danmörku (s.s. fyrir viku sem ég flutti)
við höfum svipuð áhugamál og smekk á mörgu, fyrir utan að hann er Ferrari/Schumma maður og ég er McLaren kona.
En að svo stöddu er ég ekki viss sjálf hvort það er eingöngu kynferðislegt… hann er samt svo oft ofarlega í huga mér.
þetta er búið að gerast…
það var pabbahelgi hjá systur minni, hún fór til þýskalands og hennar fyrrverandi kemur á okkar heimili til að vera með börnin 3, við lentum upp á kannt og ég áhvað að flýja að heiman (var nú ekki spennt fyrir því að reka hann út og vera ein með mitt barn og 3 í viðbót, þar sem þau eru en að kynnast mér)…
só… ég hringdi í þennan mann og spurði hvort ég og sonur minn mættum gista hjá honum um helgina, sem var ekkert mál.
ég mætti á svæðið, hafði aldrei hitt hann fyrr og við spjölluðum, fengum okkur bjór og rifumst um formúluna (sem var mjög gaman).
íbúðin sem hann er í er 2 herbergja…
hann var með son sinn sem er 5 ára (sem fór svo til mömmu sinnar á laugadag), minn er næstum 4 ára, við letum þá bara sofa í rúmi stráksins og sváfum þá saman í rúminu hans…
hvorugt okkar gat sofið… við vorum svo vör við hvort annað, við kúrðum og letumst vera sofandi, ég heyrið á andadráttinum að hann var ekki sofandi og hann vissi það að ég var ekki sofandi… mjög erfið nótt! :)
þetta var á föstudeginum…
á laugadag ræddum við ýmiss málefni og þar á meðal aldursmun og við vorum sammála um að það ætti ekki að skipta máli hvað öðrum finnst en það væri samt óþægilegt og erfitt. Einnig töluðum við um kossa, ég sagði honum hvað mér finnst þeir spennandi og oft mest freistandi, ég spurði hann hvernig hann kyssi og hann sagðist ekki geta svarað því.
Um kvöldið komu gestir til hans, þar á meðal systir hans sem fílaði mig í tætlur, og hann fór út á lífið með þeim, ég skrifaði þetta sem þið eruð búin að vera að svara og fór að sofa.
Þegar hann kom, lagðist hann hjá mér og spurði mig hvort ég vildi enn vita hvernig hann kyssi, auðvitað sagði ég , JÁ! Nammi namm…
Við lékum okkur smávegis (bara munn og hendur), þá vaknaði sonur minn og ég fór að sinna honum. Maðurinn fór bara að sofa… ég skreið svo uppí til hans og hann bara dró mig til sín og hélt þétt utan um mig (hann talaði um það að við ættum að hittast aftur).
Systir mín kom (exið hennar með) og sótti mig á sunnudeginum og sökum þess missti ég af formúlunni… djö…
Þegar við vorum að fara þá kyssti hann mig bless þegar þau hin sáu ekki til, sem var ekki eitthvað sem ég hafði búist við né hvarlaði að mér.
Ég sagði systur minni frá þessu, tel það vera réttast þar sem hún er búin að þekkja þennan mann í 10 ár eða meira. Hún sagði reyndar að það væru minni líkur á því að hann væri að sækjast eftir eingöngu kynferðislegu sambandi.
Ég veit svo sem ekki hvort þetta verði eingöngu kynferðislegt eða eitthvað meira.
Hvað á ég að gera?
Hvernig á ég að snúa mér í þessu?
Og í hvaða átt á ég að hlaupa… :þ
Pirrandi hvað maður getur orðið ráðþrota stundum og allt einhvernveginn í einum graut í hausnum á manni.