VÁ.. hvar á maður að byrja:S
Alltaf þessar bölvuðu hugsanir sem maður fær þegar maður fer að lúlla sérstaklega! sammála?
Allavegana eru mínar hugsanir um hvað ég eigi að gera við þessu máli sem ég ætla að láta í ljós á eftir.
Ég átti geðveikt líf!:D svo skemmtilegt og fullkomið (fyrir utan það á ég á ekki góðan pabba, en elska hann samt út af lífinu) þangað til ég eignaðist kærasta. Þá fór allt í FOKK! Vinirnir sem ég átti áður en ég kynntist honum byrjuðu að fjarlægast mér eða réttara sagt ég þeim. Svo var kærastinn áð banna mér að gera hitt og þetta og stupid me! ég gerði það! Ég hætti því sem að mér fannst gaman fyrir þennan strák og bara til að sýna honum að ég elskaði hann. Samt fannst honum alltaf eitthvað vera að. Ég var alltaf pirruð í hans augum þó að mér hafi engan veginn fundist það. Ég talaði rólega, brosti og gerði allt sem venjuleg, ekki pirruð manneskja mundi gera. En hann hélt áfram að segja að ég væri svo pirruð.
Eftir nokkra mánuði (2-3) í sambandi við þennan strák (sem er ALGJÖRT ÆÐI,og í alvöru ég elska hann út af lífinu og hef alltaf gert það, nema þegar hann lætur svona) þá byrjaði ég að hætta með honum. Og nokkuð oft! Ég kannski sagði honum upp en hann sá til þess á einhvern hátt að ég gæti það ekki. Hann grét, bað, hótaði að skera sig eða drepa sig og margt meira. Ég held að ég hafi hætt með honum svona 20 sinnum og núna erum við í pásu en þó en saman. Btw.. pásan er ekki að virka. Hann er alltaf að gera eitthvað sem er að skemma þessa pásu og við þurfum að byrja upp á nýtt. Það er svo margt meira við þessa hluta sögunnar en ég nenni varla að skrifa meira og ég efast um að þið viljið lesa meira…
Vinirnir mínir þola held ég ekki að við séum saman. Tala illa um okkur, og það særir mig.
P.s. ekki nóg með það að þetta mál sé í fullum gangi heldur ´þá var ég að frétta það bara í gær að mjög náskyld frænka mín hafi verið að fremja sjálfsmorð fyrir nokkrum dögum=(
Mig langaði helst að vera hún en hef ekki hugrekkið í það að ljúka því af. Þannig að mig langar að flýja frá öllu og koma aldrei aftur=(
Það hlýtur að vera til önnur aðferð til að laga Þetta?
Hvað get ég gert?
Hjálp..
Tek það fram að þetta er allt miklu flóknara í raunveruleikanum og ekki er hægt að segja frá mörgu