Ég er búinn að vera hrifinn af stelpu í tæplega 1 ár!! Ég er svona gaur sem á mjög erfitt með að verða hrifinn af stelpu og ég get ekki sagt neinum frá þessu með hana, sem er geðveikt skrítið því ég get alltaf sagt bestu vinum mínum hvað sem er að bögga mig en ekki þetta!!! Ég er búinn að byrgja þetta svo mikið inn í mér að ég fer alveg að snappa!! Ég get ekki hætt að hugsa um hana!!
Ég er byrjaður að svitna eins og ég veit ekki hvað og verð stundum svo pirraður að ég kýli stundum svo fast í veggi og húsgögn að ég fæ mar í stundum 2 vikur!!!!!!
Hvað er að mér og hvað á ég að gera?????????????????????????????
PLEASE HJÁLPIÐI MÉR!