Það fann enginn upp þá reglu, málið er bara að var einusinni þannig að kallinn vann úti og konan heima og þessvegna borgaði kallinn alltaf allt því að konan var ekki með neinar tekjur. En já núna vinna flestar konur úti og vilja jafnrétti og allt það en svona hlutir eins og að borga alltaf allt, redda alltaf öllu, láta strákana hafa fyrir því að reyna við sig og reyna komast hjá því að þurfa gera það sjálfar og fleira varð bara eftir. Ég myndi vel skilja það ef ég væri stelpa að halda þessu svona ég meina þær eru að græða vel á þessu mikið rétt ? og ef maður borgar ekki þá er maður cheap eða fátækur :) , en samt fleiri og fleiri stelpur bjóðast nú til að borga onkulítinn hluta af einhverju auk þess þá látum við strákarnir bjóða okkur uppá að gera andskoti mikið fyrir kvenfólkið. Þetta gerir líka það af verkum að VIÐ eigum að vera rómantískir og fleira afþví að við áttum einusinni alla peningana.
En svona yfirhöfuð þá er mér skítsama um peninga þeir eru frekar tilgangslausir og yfirmetnir þannig að alveg eins gott að eyða þeim í kvenfólk og félaga sem manni líkar vel við.
Samt eitt sem mig langar að benda á ef þér finnst konan þín láta þig borga allt prufaðu bara láta hana borga fyrir sig og sjá hvernig hún tekur því, en náttúrulega bara ef þið þekkjist mjög vel annars er það ekki einusinni gaman að gera það :)
Ef ÞIÐ konurnar VISSUÐ bara hver peningaútlátin hjá okkur eru til að borga hluti fyrir ykkur!