Sko ég er eiginlega sammála Mulan, ef þú fengir hana til þess að hætta með hinum stráknum þá hlytiru að verða hræddur um að þetta myndi endurtaka sig.
Nema ef ástin er það sterk, og ef hún væri ástfanginn af þér eins og þú ert af henni, þá gæti þetta gengið, ég á vini sem þurftu að gera þetta.
Strákurinn var trúlofaður bestu vinkonu hennar, og hún varð ástfangin af stráknum en vildi ekkert gera í því, út af því að þetta var besta vinkona hennar og hún vildi ekki eyðileggja samband þeirra með því að reyna við hann,
svo einn daginn þá kemur hann til hennar og segir við hana að hann elski hana, og hún segir það sama við hann. Þau byrjuðu saman, auðvitað var besta vinkona hennar brjáluð og hætti að tala við hana og hefur ekki enn talað við hana og þetta gerist fyrir rúmu ári, en henni fannst þetta vera þess virði….. og það hlýtur að vera það því að ég sver að ég hef aldrei nokkurn tímann séð jafnástfangið fólk á æfinni og þau, þau virkilega elska hvort annað…
svo ef þú heldur að þetta sé svo sterkt(ég veit ekkert hvort þú og strákurinn séu vinir eða ekki) að hún er til í að hætta með honum, þá myndi ég segja henni það, það er aldrei að vita hvað hún segir við þig, kannski mun það særa og kannski segir hún að hún elski þig