Ég verð nú að segja fyrir mig að mér finnst ekkert meira heillandi en herramaður! Maður sem þú getur treyst, hann er góður við þig og getur verið elskuhuginn þinn og einnig þinn besti vinur.Það er samt alveg heilmikið til í því að stelpur láta stráka fara ílla með sig, og ástæðan er aðeins ein…: karlmenn eru fullir af hormónum og þurfa að fá útrás fyrir þá, aftur á móti eiga konur það oft til að rugla þessu saman við ást( því það er það sem þær eru fullar af og þurfa að fá útrás fyrir). og auðvitað tekur maður meira eftir fólki sem er áberandi ( athyglissjúkt) en herramaðurinn sigrar ALLTAF að lokum. ( allavegana ef konan vill hann ekki er hún bara einfaldlega ekki þess virði!!!)