Hæj…..:) oki ég veit ekkert hvernig ég á að byrja þessa grein!
allavega vil ég taka fram að ég er 16 ára stelpa.

En já vandamálið er að ég er með strák og er bara nýbyrjuð með honum sko og hann er alveg æðislegur, ekkert smá góður og sætur og bara allt sko! En ég er samt soldið mikið hrifinn af besta vini hans sem er geggjaður vinur minn líka og er strákurinn sem besta vinkona mín er ástfangin af….

Besta vinkona mín var með honum einhvað smá bara að dúlla sér saman sko en hún er alveg yfir sig ástfangin af honum. Hann er reyndar með stelpu en samt sagði hann mér um daginn að hann væri hrifinn af mér og vildi vera með mér í sambandi…. og það bara kom mér alveg þvílíkt á óvart og ég fékk bara enn meiri áhuga á honum og núna bara veit ég ekkert hvað ég á að gera? ég vil ekki særa hinn strákinn en ég bara hugsa svo ´lítið hvað ég geri og gæti haldið fram hjá honum þó eg vildi það ekki…..

getur einhver hjálpað mér og sagt mér hvað ég á að gera því að ég er alveg tóm…..?

þakka æðislega….:)