(17(86)/kk)
Blessað veri fólkið.
Vildi bara tjá mig smá ;), sko ég var að koma úr mínu fyrsta sambandi , orðið soldið síðan núna reyndar, hef bara mjög lélegt tímaskin þannig ég veit eiginlega ekkert hversu langt síðan það er ;þ (bíst við því að ég taki svo lítið eftir tíma þar sem ég er í tölvunni 24/7 og tími er eitt af því sem maður tekur ekki mjög vel eftir þá), kannski mánuður eða eitthvað. Allavega þá var ég aldrei sáttur með útkomuna, var alveg í rusli og allt sem fylgir því, við vorum og erum(allavega ég) alveg hrifin af hvoru öðru, það var bara vandamál með að hittast, gátum ekki hist það oft vegna staðsetningu hvors annars.
Allavega þá gat ég bara ekki hætt að hugsa um hana eftir að við hættum samann og hún er enðá föst í hausnum á mér, ég bara virðist ekki geta sleppt takinu á henni og haldið áfram.. ég held að það sé hluta til vegna þess að ég held að ég muni kannski fá hana aftur.. sem gæti alveg eins bara verið rugl, ég veit ég á til með að vera stundum allt of bjartsýnn eða allt of svartsýnn, allavega þá er ég bara sona bíða eftir því að tækifæri gefst og er bara á meðann að ignora allar aðrar stelpur.. ég bara á til með að ef ég tengist fólki þá tengist ég því mjög sterkt því ég er ekkert sona almennt mikið að umgangast fólk ;þ , aðalega bara sona í tölvunni 24/7.. btw þá kynntist ég henni á netinu ;) , og bestu vinkonu minni, og kynnti vini mínum fyrir stelpu sem ég kinntist á netinu og núna eru þau samann :) , þekki margt fólk af netinu, þannig finnst mér það þægilegt.
Ég var með þessari stelpu í 4 mánuði, þannig þetta er ekkert vorkunnarvert, veit að margir hafa lent í miklu miklu verri hlutum eins og að vera búin að vera í 3 ára sambandi og svo bara segir annar aðilinn “Ég er búin að finna annan/aðra..” það hlítur bara að vera paaaaiin..
Ég á margar skemmtilegar minningar með þessari stelpu og mér þikir meira vænt um hana en allt annað(það kannski dæmi um að ég tengist fólki of mikið?), ég á til með að gera mjög heimskulega hluti og þetta er kannski eitt af þeim, að ignora allar stelpur því ég held að ég muni fá hana aftur. Ég veit allavega að þegar ég er búin að ákveða að gera eitthvað þá er ekki aftur snúið, ég mun allavega gera eina tilraun á að fá hana aftur og ef það virkar ekki þá verð ég bara að reina halda áfram, maður getur ekki fengið allt, fólk kemur og fer úr lífi manns.
Allavega þá mun mín fyrsta ást ávalt eiga stað í huga mér, hvernig sem hlutirnir eiga eftir að fara þá óska ég þér(mín fyrverandi) alls hins besta í lífinu :) ;*