Jæja… verð að update smá…
Fór með honum á annað stefnumót þar sem ég eldaði handa honum, þetta var nú bara óskaplega plain en þetta var rosalega fínt allt samt.
Hann hrósaði mér í bak og fyrir því að maturinn var víst svo góður, ég og hann spjölluðum fram eftir nóttu á meðan við höfðum það cozy og rómó í sófanum, kveikt á TV og við að spjalla.
Það var allt eftir því besta og ég sé ekki eftir einni einustu mínútu sem í þetta fór því að það er alltaf alveg yndislegt að vera nálægt þessum manni aðalega þegar ég held að ég sé að verða hrifin af honum… annars erum við bara æðislega góðir vinir, mér líkar gífurlega vel við hann og ég virðist geta talað við hann um allt og ekkert, bara þægileg tilfinning að vera nálægt honum og vita það að ég þarf ekki að vera með áhyggjur.
Þetta endaði þó eins og seinast, ég steinsofnaði í rúminu hans undir hrikalega góðri sæng og hafði það bara svo einstaklega gott :D
Það eru ekki allir karlmenn eins og þessi og ég tel mig heppna að við erum að minnsta vinir því að hann er einn af fáum karlmönnum sem ég get talað við og verið einlæg við, kannski því að mér líður vel nálægt honum.
Ef þið finnið þá manneskju sem ykkur líður svona vel með þá veit ég hvernig ykkur líður… betur en vel :D
kv. Taran