hæ hæ
Nú er ég að komast yfir 3 mánuðinn er komin sirka 13-14 vikur
og ég er búin að vera geðveikt lasinn og liðið illa.

ég lenti í því um dagin að brjálaður maður hótaði mér lífláti og rústaði staðnum sem ég vinn á. ég er frekar hrædd við að fara aftur að vinna þangað.(kallinn var handtekin)ég efast samt um að ég skipti um vinnu,ég sótti um nokkrar vinnur í gær og um leið og ég sagði að ég væri ólétt lá við að mér væri hent út.

Mamma vill að ég hætti að vinna þar og komi helst heim.
ég er nýbúin að vera í löngu fríi heima og leið bara vel en fannst samt mjög gott að koma heim og losna við stælanna í yngri systkinum mínum(gelgjan).

Mér finnst eitt fyndið þegar ég sagði vinum mínum að ég ætti von á barni þá hafa 4 vinkonur mínar sagst vera óléttar eða haldið það. engin þeirra er ólétt!

Kveðja
Kristel