Núna þá eru allir í skólanum að spyrja hana út í þetta en hún fer bara í feitt þunglyndi þegar það er verið að tala um þetta. Þessi strákur á fullt af vinum sem eru gegt vinsælir í öðrum skólum svo að hann á fullt af vinum í mörgum skólum og hún er alltaf að frétta að hann ætlar að berja hana og allir vinir hans. Ég meina er ekki í lagi með svona fólk??
Þessi strákur var gegt nice við hana þegar þau voru saman, en hún gerði ekkert við hann, þúst hún sagði ekkert sem gæti móðgað hann eða neitt svo ég er bara að pæla hvort hann hafi bara verið að nota hana vegna þess að vinir hann hötuðu hana??
Hvað á ég að segja henni til að gleðja hana og hvaða ástæðu á þessi strákur að hafa til að berja hana???
-Það er ljótt fólk sem heldur fram að fegurðin komi innan frá