Svona til að nefna aukalega ætla ég og ásamt öllum þeim sem vilja að setjast fyrir utan Skífuna Laugavegi mánudagskvöldið 14. maí með garðstól, ghettóblaster og 1-2 kippur af bjór og bíða eftir opnuninni þann 15. maí. Þetta er gert svona til að auka stemminguna fyrir tónleikana og finna virkilega til tilhlökkunarinnar að fara á fyrstu tónleika Rammstein á Íslandi sem vonandi verða ekki þeir einu.
Endilega að koma þessu til fólksins A.S.A.P. svo það náist jafnvel einhver fjöldi á mánudagskvöldið næstkomandi. Kanske það sé hægt jafnvel að útbúa svona ég ætla dótarí svo hægt sé að sjá hversu margir koma til með að mæta :-)
Frá Barnuts
<A href="