Ókei, nú veit ég að ég verð rakkaður í skít. En ég verð bara að þola það.
Skoðanir eru mismunandi og svona.
En það er eitthvað við hann Slash. Stíl hans sem gítarista, stíl hans á sviði og tónlist sem hann semur.
Ég bara þoli þennan mann ekki. Eitthvað við hann.
Hef aldrei getað hlustað á Guns n' Roses, þó ég fýli fullt af Old school rocki.
Hinsvegar virði ég það að fullt af fólki líta upp til hans , og jafnvel er það fólk að skíta yfir tónlistarmenn sem ég elska. Þannig….
Mismunandi er smekkur manna :)