Í BÆNUM !
Þá eru útihátíðirnar ekki taldar með :)
Það eru svo ömurlegar hljómsveitir að spila á þessum fjandans útihátíðum (það eru kannski 2-3 áhugaverðar í Galtalæk).
Hverjir nenna að leggja það á sig að sofa í TJALDi (ég HATA að sofa í tjaldi) bara til þess að drekka og hlusta á leiðinlegar hljómsveitir ? Annars er bara ágætt að losna við allar gelgjurnar, popparana og hálvitana úr bænum um Verslunarmannahelgina :)
Veit einhver hvort það er aldurstakmark í Iðnó (þar sem Innipúki er) ?
P.S. Jú Alfie, það verður sjónvarpsgláp líka :D ég er búin að leigja fullt af spólum! ég hringi í þig til að ákveða með tíma.