sko, Billie joe var búinn að vera edrú í heilt ár. svo kom hann til vegas (grunar að það sé erfitt að vera edrú í vegas)
samkvæmt öllum upplýsingum sem ég hef leitað uppi hafði billie drukkið heldur mikið, og því held ég að það spili soldið mikið inní hegðunina hans.
usher spilaði lengur en hann átti að gera, svo það var stytt tímann sem green day fengu að spila (úr 45 niður í 25 mínútur)
að sjálfsögðu er þetta yfirgangssemi gagnvart hljómsveitinni, því að rétt eftir basket case ætluðu þeir að byrja að spila nýu lögin sín,en þá er bara vælt í þeim að fara að hætta,endalaust verið að gefa þeim þau skilaboð að þeir eigi bara 1 mínútu eftir.
já, þeir eru búnir að taka upp allar plöturnar.
mér finnst þetta bara vera drullu flott hjá honum, það er reyndar smá vottur af stjörnustælum þarna,
en ég fyrirgef það. ég meina, þetta er hálf fáránlegt.
þeir eru beðnir um að spila í 45 mínútur,og til þess komu þeir.