Sniðug spurning
1.Laibach voru án efa bestu tónleikar sem ég hef séð. Var búinn að vera fan í mörg ár og ætlaði varla að trúa því þegar ég heyrði að þeir voru að koma á klakann.
2.Tónleikarnir sem Einstürzende Neubauten héldu í Stokkhólmi 2004 voru tónleikar sem breyttu sjón minni á tónleika. Ég mun sjá þá aftur í vor.
3.Þegar Nick Cave stóð upp og greip rafmagnsgítarinn og tók TUPELO í höllinni minnti hann mig virkilega á hvað það var sem ég dýrkaði við hann alla tíð.
Rammstein, Die Krupps og hinir ódauðlegu meistarar KMFDM komu mjög nálægt því að vera á þessum lista og ég ætla að bæta við hérna alveg neðst að mér finnst besta Live-hljómsveit Íslands vera Sólstafir