David hefur ekki trommað neitt með þeim síðan á síðasta ári. Einu nýlegu myndirnar af honum með bandinu eru á fyrstu vikum í stúdíói fyrir þessa nýju plötu, en þá situr hann bara og horfir á. Ekkert meira en það.
Á unplugged var Michael Jochum (Mr. Pig) bara á trommum (bongos).
Terry Bozzio trommaði inná plötuna (en ekki alla, er sagt. Grunar að Jonathan hafi mundað kjuðana á einhverjum lögum).
Joey Jordison mun svo túra með þeim í Evrópu og Family Values Tour 2007. Munky hringdi í hann og nánast áður en hann náði að spyrja Joey hvort hann væri til, þá var Joey búinn að samþykkja. Terry átti að túra, en getur það ekki.
David er algerlega í fríi á þessari plötu og er bara að elda sushi þessar vikurnar.
Ég á ekki von á öðru. Jonathan sagði að hann muni taka sér pásu allavega eina plötu og túrinn eftir hana.
Eins og hann (Jon) sagði í viðtali, dyrnar eru alltaf opnar fyrir David að koma aftur, en Head kemur að læstum dyrum… svo lengi sem hann lætur svona býst ég við.
David var víst bara orðinn þreyttur á þessum bransa og vildi fá smá hvíld, sem hinir veittu honum án þess að skapa nein vandræði. Þetta er allt í gúddí :)
nei ég er nú bara að tala um lagið… sem er crap, alveg eins og Twisted Transistor og öll See you on the other side platan, fuck þar voru peningum illa eytt.
Hef ég ekki verið virkur notandi þar í 7 ár? Hef ég ekki horft á hvern þráðinn á fætur öðrum breytast í drullupoll fullan af skít? Ég held ég viti nú bara ýmislegt um það. En ef einhver vill ræða Korn á metaláhugamálinu ætla ég ekki að banna þeim það, enda metal hljómsveit. Ég ætla heldur ekki að reka þá af rokk áhugamálinu, einfaldlega til að halda friðinn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..