Ég efa það stórlega að manninum vanti peninga þó að ég viti náttúrulega ekkert um það. Maðurinn á einn þriðja í næst söluhæsta artist sögunnar Led Zeppelin, einungis á eftir bítlunum. Þar af hafa Zeppelin gefið út helmingi færri plötur en bítlarnir ef þú telur með allt það sem hefur verið gefið út í nafni bítlanna eftir að þeir hættu, i.e. anthology sem er vonandi væntanlegt með Zeppelin einhvern tímann í náinni framtíð.
Plötur með Zeppelin, bítlunum og Floyd og fleiri hljómsveitum seljast enn þá mjög grimmt í heiminum, oft á tíðum í meira magni en vinsæla tónlistin sem við hlustum á en fær hinsvegar ekki mikla útvarpsspilun hér á Íslandi vegna þess að það er hætt að gefa út singula af þessum plötum. Þess vegna rísa lögin af plötunum ekki á vinsældarlistanna.
Ég efa því stórlega að Jimmy gamla kalli vanti pening en hver veit. Hann hefur ætíð verið svolítill sjúklingur.