Ok þetta er eiginlega smá nöldur.
Mér finnst bara svo leiðinlegt þegar einhver er að koma með sína skoðun á einhverri hljómsveit, eins og Þessir eru bestir og þá þarf einhver að mótmæla. Það hefur hver sinn smekk og mér finnst óþarfi að úthúða tónlistarsmekk hjá einhverjum. T.d. þegar ég las kork hérna fyrir neðan um MCR. Þar var einhver að tjá sig um að það væri besta hljómsveit í heimi eða eitthvað svoleiðis. Og svo komu einhver svör einsog já þeir eru góðir og líka eins og við má búast einhverjir sem sögðust ekki fíla þessa tónlist. Og þá þurfti sá sem skrifaði korkinn að mótmæla; Jú þeir eru bestir!!
Halló það hefur hver sinn smekk og ef fólk hefur ekki þroska til að vera á netinu á hugi.is þá má það bara sleppa því.

Fyrirgefið, kannski tilgangslaust hjá mér en jæja. Engin skítköst, eða jú það er í lagi:D