Við skulum aðeins laga þetta hjá þér kallinn minn.
Ok, áður en ég byrja ætla ég að biðja þá sem ætla að vera fyndnir að fara bara eitthvað annað og verið fyndnir þar.
Þá kem ég mér að efninu:
Margir hér virðast hafa mikla fordóma gegn Glam-Rock og mér gæti ekki verið meira sama, ykkar skoðanir eru ykkar skoðanir og þið megið bara hafa þær útaf fyrir ykkur.
Það sem fer mest í taugarnar á mér er það að þegar talað er um Glam-Rock þá er eingöngu talað um hina norksu Wig Wam og þeir síðan rakkaðir niður í nafni glamsins.
Vitið þið í alvöru ekki um fleiri sveitir? Ef þið vitið ekki um fleiri þá skulið þið ekkert vera að rífa ykkur útí alla stefnuna heldur annaðhvort þá sem hljómsveit eða bara þegja.—–
Allavega þá veit ég alveg um Glam-Rock hljómsveitir aðrar en Wig Wam, það er bara svo æðislegt að nota þessa hljómsveit gegn þeim sem virkilega fíla Glam-Rock.
Hinsvegar þá finnst mér þessi korkur þinn æðislegur, þú ert búinn að vera að segja að Sigur Rós sé ömurleg og að hinar og þessar hljómsveitir séu lélegar og talar hér mjög illa um Diktu, sem er allt í lagi þvi þetta er þín skoðun, hinsvegar þá skalt þú ekki vera að væla um að aðrir séu að tala illa um Glam-Rockið ef þú ætlar að vera að tala illa um allt annað sem aðrir nefna hér. Og þín svör eru ekki neitt hefluð það er bara skitið yfir hverja hljómsveit á eftir annari og ekkert verið að segja “Mér finnst þetta ekki góð hljómsveit”, nei það er bara sagt “Þetta er ömurlegir, rangeygðir hálvitar sem vita ekkert” (Eða svo ég Quoti þig nú úr Sigur Rósar korkinum)
glamrocker
…sigur rós er ömurleg….hæfileikalausir rangeygðir rugludalllar….
Annars þá held ég að þú ættir að passa glerhúsið ef þú ætlar í steinakast kallinn minn.