Ég skil nú ekki hvað þér finnst að upptökunni á laginu, ég held að upptökustjórinn hafi nú ekki getað gert sína vinnu mikið betur. Annars finnst mér þetta alger snilld, það er ekkert skemmtilegra en að kynnast lögum frá öðru sjónarhorni sérstaklega af maður hefur heyrt þau oft.
Ég held að það ætti nú frekar að kommenta á Stained sem gáfu út stúdíó útgáfu af Outside fyrir stutt. Það kalla ég hörmung. Kannski er það útaf því að hin útgáfan var búin að spilast svona 3x of lengi, en það hefði nú alveg mátt gera eitthvað við lagið, þ.e. vinna aðeins í því, ekki bara hendast inní stúdíó og rumpa því af.