Það var yfirleitt Dee Dee Ramone bassaleikari sem hrópaði 1234, amk á fyrstu plötunum.
Upphaflega bandið var: Joey Ramone (Jeffery Hyman) söngur, Johnny Ramone (John Cummings) á gítar, Dee Dee Ramone (Douglas Colvin) á bassa og Tommy Ramone (Thomas Erdelyi) á trommum.
Eftir 1977 hætti Tommy að spila á trommur og þeir notuðu ýmsa trommuleikara. Fyrir utan Tommy var þekktasti trommuleikari þeirra Marky Ramone (Marc Bell). Dee Dee bassaleikari hætti 1989 og í hans stað kom CJ Ramone (Christopher John Ward).