Ég hef þurft einu sinni eða tvisvar áður að eyða póstum frá Soul666, annar var með titlinum xxx er fáviti (eða eitthvað svipað) og hinn var póstur um hve mikið hommafífl einhver væri.
Hann hefur oft og mörgum sinnum verið með svona óþarfa leiðindi í póstunum sínum, fyrir nokkrum dögum var það í undirskriftinni hans að Óli Palli væri “gamall fíbl” og síðan kom ég hérna í kvöld og las grein á korkinum eftir hann þar sem var skrifað að ákveðinn notandi sökkaði. Ég eyddi þeim pósti af því mér fannst þetta ganga gegn reglum Huga um bann við skítkast sem ég er núna búinn að minnast á við ykkur nokkrum sinnum undanfarið. Ég ákvað líka að senda Soul666 skilaboð þar sem ég tilkynnti honum að hann ætti að fara að bæta sig því annars myndi ég kvarta yfir honum til Vefstjóra.
Næst þegar ég kem inn á Rokk þá er hann með árás á mig sem sést hér fyrir ofan þar sem hann heldur því fram að ég hafi eytt póstinum af því að ég væri hrifinn af einhverri hljómsveit og á móti annarri hljómsveit eða eitthvað álika, ég lýsi þá yfir raunverulegri ástæðu sem var skítkastið, hann neitaði því fyrst en játar það síðan seinna í þræðinum.
Ég tek fram að ég hef enga ánægju af því að eyða póstum en ég verð að gera það enda er það skylda mín sem stjórnandi, ég hef heldur enga ánægju af því að biðja um að fólk sé bannað en það er líka skylda mín.
Ég misnota ekki vald mitt, ég skal rökstyðja ákvarðanir mínar ef ég er beðinn um það og ég mun biðjast afsökunnar ef ég geri mistök, ég reyni að vera góður stjórnandi og ég mun hlusta á þá sem nota þetta áhugamál.<br><br><A href=“javascript:%20getUserInfoByName('mAlkAv');”>mAlkAv hinn myrki</A>
Millenium Hand and Shrimp.
So Long, And Thanks for All the Fish