Nú hef ég heimsótt þessa síðu í ca. 4 ár og ég hugsa með hryllingi til allra þeirra greina sem komið hafa um ævisögu Kurt Cobain. Hvernig væri (og ég veit að þetta verður álitið sem nöldur og leiðindi en þetta er meint af alvöru) að setja á síðuna fastan dálk þar sem hægt er að lesa ævisögu Cobains. Þá gætu allir þeir sem hafa áhuga á að lesa þetta aftur og aftur einfaldlega snúið sér að þeirri grein. Og ef einhver hefur áhuga að skrifa sína útgáfu af ævisögunni þá gætu þeir einfaldlega póstað henni sem svari við þeirri grein. Þetta gæti jafnvel orðið svona mini Nirvana áhugamál!

Þetta er alls ekki illa meint. Bara leiðinlegt að lesa sömu greinina aftur og aftur, sérstaklega þar sem ég er lítill Nirvana aðdáandi.
www.dojopan.com