sko hérna soul666 þú þarft að slappa af drengur. Þú komst með þinn lista um tónlistarmenn sem fara í taugarnar á þér og baðst aðra um að gera það sama og fólk gerði það. Um leið og einhver nefnir eitthvað sem þú ert ekki sammála þá kemurðu með einhver óþroskuðustu og leiðinlegustu svör sem ég hef séð í lengri tíma. Þú kannski gerðir einhvern fúlan með því að taka fram einhvern sem þér finnst fara í taugarnar á þér. Og þér finnst það í lagi right? Svo að af hverju ertu að biðja fólk um að koma með þetta ef þú tekur þetta svona nærri þér? WHY?! Þú verður að átta þig á því að það eru ekki allir með sama tónlistarsmekkinn. Fólk er eins misjafnt eins og það eru margir í heiminum. Þó svo að þú fílir Aaron Lewis eða Fred Durst or whom ever þá þarftu ekki að kalla fólk fífl, asna, hálfvita og segja fólki að deyja. Það finnst mér persónulega óþroskað og alger asnaskapur. Ef þú getur ekki skipst um að skoðunum við annað fólk á mannlegan hátt og án þess að setja upp kryppu og verða andfúll þá bara slepptu því að tjá þig. Ég hef séð allskyns nafnaköll frá þér og svívirðingar, skítkast bara af því að einhver er ekki sammála þér eða fílar ekki manneskjuna sem þú fílar. Finnst þér þetta rokrétt? Halló! Pældu í þessu, hættu að taka köst á korkunum og í greinum því fólki er farið að finnast þetta leiðinlegt og margir eru á því máli að það eigi að banna fólk sem lætur svona. Þú lætur eins og einhver snaróður vitleysingur sem getur ekki róast niður af því einhver útí bæ fílar ekki Aaron Lewis / Fred Durst. GET OVER IT! Það skiptir engu máli hvað öðrum finnst, ef þú fílar ákveðna einstaklinga eða hljómsveitir þá er það fíng, svo lengi sem þú ert ekki að taka það of nærri þér að aðrir fíli ekki það sama. Persónulega er mér ALVEG sama þó að einhver fíli ekki það sem ég fíla, því ég er ekki að fíla þetta fyrir aðra. Ég fíla þetta því þetta nær TIL MÍN. Þetta virðist vera eitthvað með LB fans að þeir taki það voðalega nærri sér ef einhver fílar ekki LB. Af hverju verður fólk svona brjálað? Hvað græðir fólk á þessu? Nákvæmlega ekkert. Eina sem fólk er að gera sjálfu sér með svona pirringi og “hatri” eins og þú soul666 er að pirra sjálft sig. Hvað meina ég með því? Jú þú ert að pirra sjálfan þig. Það er öllum sama hérna með að þú hatir þennan eða hatir hinn. Eina sem þú gerir er að æsa þig upp og eyða óþarfa orku í það. Fílaðu bara það sem þú fílar og lærðu að lifa í sátt og samlyndi við annað tónlistaráhugafólk. Þú ert ekkert að hækka álit fólks á LB eða Staind (af hverju sjá allir bara Aaron Lewis?) með því að kalla fólk asna eða whatever, já og segja fólki að “deyja”. Þú bara ert að gefa fólki ástæðu fyrir því að fíla þessi bönd ekki því það virðast vera MJÖG margir LB-fans sem láta svona, hótandi öllu illu og með læti. Sýnir það að LB fans eru bæði ungir og frekar, afsakið, óþroskaðir vitleysingar. Ég býst alveg við því að fá á mig annað hvort svona hate skilaboð eða reply “full of hate”. Þetta er bara það sem mér finnst og ef einhver er ósammála mér þá má hann vera það. Ekki ætla ég að æsa mig yfir því. Í stuttu máli soul666, hættu að æsa þig, þú ert að gera sjálfum þér lífið leiðinlegra með því :) Just dig what you dig and don´t give a flying rat´s ass about what everybody else thinks. Auk þess að ef þú gerir það þá verða korkarnir mun betri og án alls skítkasts :)
Þetta er undirskrift