Það er Icelandair sem sér um að ganga frá þessum netmiðamálum…
Ef þið keyptuð miðana á netinu þá hafið þið væntanlega notað til þess kreditkort. Þið getið fylgst með því hvort búið sé að gjaldfæra miðana á kortið og um leið og það er búið ættu í mesta lagi að líða 2-3 dagar þar til miðarnir eru komnir í ykkar hendur…
Var sjálfur orðinn frekar órólegur á föstudaginn var og sendi þessum netklúbbi Icelandair póst og fékk nákvæmlega sömu staðfestingu til baka og þegar ég keypti miðana…en engin svör hvenær þeir myndu berast…
Hef samt enga trú á að ég hafi verið rændur…Allt tekur sinn tíma hjá Icelandair…en ef enginn gjaldfæring á kortið er búin að eiga sér stað næsta föstudag þá mun ég athuga þetta enn frekar…